August 26th, 2010 eftir hfbjartur
3 athugasemdir »

Ljósmynd: Kristinn
Fjórir Bjartsmenn mættu til leiks á Íslandsmeistaramót í fjallahjólreiðum við Rauðavatn í blíðskaparveðri klukkan 19:00 þann 25 ágúst 2010. Um fjörtíu keppendur voru mættir og ræstir til leiks og fylltist allt af ryki, keppendur pældu lítið í því tóku sénsinn og sleiktu út um! Keppnisbrautin er um 7km löng og eru hjólaðir fjórir hringir, það reynir á úthald, tækni og þor og eflaust best að gleyma stað, stund og fjölskyldunni í þessar c.a 100 mínútur sem þetta tekur.
Árni í Markinu kom bremsulausum Bjartsmanni til aðstoðar. Árni mætti á svæðið með bremsuborða, ekki nóg með það því hann tók með sér viðgerðamann sem var ekki að verri gerðinni við erum að tala um hann Rúnar í Hjólameistaranum og massaði hann bremsurnar í tæka tíð fyrir start. Bjartsmenn mæla með þessum þjónustuaðilum og hvetja fólk til að snúa sér að þeim fyrirtækjum sem þeir starfa hjá.
Niðurröðun Bjartsmanna.
| NR. |
Nafn |
Aldursflokkur |
Félag |
Tími |
| 14 |
Helgi Hinriksson |
H30 |
Bjartur |
01:38:01 |
| 15 |
Bergþór Jóhannsson |
H40 |
Bjartur |
01:38:48 |
| 17 |
Victor Þór Sigurðsson |
H40 |
Bjartur |
01:42:50 |
|
Fór þrjá hringi |
|
|
|
| 21 |
Magni Þór Samsonarson |
H40 |
Bjartur |
01:21:29 |
Félagar Bergþór og Victor stóðu svo sannarlega fyrir sínu og hrepptu annað og þriðja sætið í H40

2'að og 3'ja Ljósmynd: Kristinn
Úrslit eru hér
Undirbúningur og ræsing smella hér . Ljósmyndari : Sigurborg
Keppnin og verðlaunaafhending smella hér: Ljósmyndari : Kristinn


ps. Hvar voru Carbon Kings?
August 22nd, 2010 eftir hhinriks
5 athugasemdir »

Addi að koma í mark
Það var nýstingskuldi og rok þegar undirritaður hjólaði á fjallahjóli á mótsstað klukkan 08:00 að morgni 21 ágúst 2010, einungis klæddur í stuttbuxur, bol og jakka. Þetta verður kaldur dagur og eflaust erfitt að hlaupa í svona kulda var hugsunin. Hjólað var sem leið lá að Geirsgötu hitti þar Árna Magg sem var búinn að merkja sér svæði en eiginkona hans María Kristín Gröndal var að hlaupa hálfmaraþon og stefndi á að hlaupa undir 1:30 sem er náttúrulega alveg frábært markmið.
Að sjálfsögðu voru Bjartsmenn að taka þátt í þessum viðburði! að þessu sinni voru það Addi 21.1km, Örn 21.1km , Steini 10km og Hugi 10km. Við Árni reyndum eftir bestu getu að hvetja okkar menn og konu, hvatningar óp okkar bárust í eyru Maríu og Adda, Örn, Steini og Hugi misstu því miður af okkur. María náði hrikalega flottum tíma og varð í öðru sæti virtist ekkert hafa fyrir þessu. Addi tók break bylgju sem náðist því miður ekki á mynd og og gaf í og náði mjög flottum tíma (sjá mynd)og langt undir settu markmiði sem var 1:45:01 !!!!
Þegar líða fór á morguninn snarhlýnaði og vind lægði og það varð bara ágætis veður og svakaleg stemming í bænum.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka – hálfmaraþon
Reykjavík – 21. ágúst 2010
Tímar innan sviga – millitími eftir 10km og flögutími (chip time)
Heildarúrslit / Total results
| 29 |
01:27:04 |
(41:37/1:26:57) |
María Kristín Gröndal |
1980 |
20 – 39 ára |
IS220 |
Hlaupahópur FH 2 |
| 88 |
01:34:58 |
(45:47/1:34:28) |
Arnar Eldon Geirsson |
1971 |
20 – 39 ára |
IS220 |
BH |
| 164 |
01:39:34 |
( 46:41/1:39:16) |
Örn Hrafnkelsson |
1967 |
40 – 49 ára |
IS220 |
Hlaupahópur FH 3 |
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka – 10km
Reykjavík – 21. ágúst 2010
Heildarúrslit / Total results
| 561 |
51:09 (49:36) |
Þorsteinn Lárusson |
1970 |
40 – 49 ára |
IS225 |
| 562 |
51:09 (49:38) |
Hugi Hreiðarsson |
1970 |
40 – 49 ára |
IS200 |
August 19th, 2010 eftir arnim
2 athugasemdir »

Íslandsmeistaramót ITT
Þeir Bergþór, Helgi, Magni, Róbert og Viktor stigu allir hjól sín í drasl á krýsuvíkurveginum nú í kvöld.. Ástæða? Íslandsmeistaramót í Time Trail. Keppendur voru ræstir út með mínútu millibili og hjóluðu þeir 20 km í ágætum aðstæðum. Það er skemmst frá því að segja að Magni vann gull í sínum aldursflokki. Mun það bætast við í gríðarlegt safn verðlaunagripa sem Bjartur hefur sópað til sín í mótum sumarsins. Þá setti menn hljóða í nokkra stund eftir að tími Helga var lesinn upp 31 min og 57 sek. En þetta mun vera besti tími sem Bjartsmaður hefur náð í þessari vegalengd og því ljóst að ný viðmið hafa verið sett.
.Bjartur vill þakka mótshaldara, HFR, fyrir vel heppnað Íslandsmeistaramót og öðrum keppendum fyrir drengilega baráttu.
Heildarúrslit má sjá hér
Myndir e. Sigurgeir Hjólamann
Myndir e. Kristinn R. Kristinsson
| Sæti |
KARLAFLOKKUR – 20 km |
Félag |
Flokkur |
tími |
| 13 |
Helgi Hinriksson |
Bjartur |
H30 |
00:31:57 |
| 15 |
Bergþór Jóhannsson |
Bjartur |
H40 |
00:33:05 |
| 19 |
Viktor Þór Sigurðsson |
Bjartur |
H40 |
00:34:26 |
| 21 |
Róbert Pétursson |
Bjartur |
H30 |
00:36:19 |
|
|
|
|
|
| Sæti |
B-Flokkur Karla – 20 km |
Félag |
Flokkur |
tími |
| 1 |
Magni Þór Samsonarson |
Bjartur |
40+ |
00:34:51 |

Ljósmynd: Kristinn R. Kristinsson
August 18th, 2010 eftir hfbjartur
5 athugasemdir »
Bjartsmenn eru alveg við það að detta í gírinn eftir sumar og æfinga frí! Það sem er framundan hjá Bjartsmönnum er uppskeruhátíð sem hefst með Ástjarnarsprettinum, í þeirri keppni eru hjólaðir fimm hringir í kringum Ástjörnina í Hafnarfirði, menn eru ræstir út með 30 sekúnda millibili og sá sem sigrar fær 22.000 stig að launum og á stóra möguleika á að verða krýndur titlinum Bjartsmeistari 2010. Það stefnir allt í góða mætingu í viðburð þennan sem endar svo með húllum hæ um kvöldið.
Myndin sem fylgir þessum pistli er söguleg í þeim skilningi að Óli (límið í hópnum) mætti á æfingu! Óli hefur verið duglegur að mæta í keppnir og það þá helst í júní, en síðan er runnið mikið vatn til sjáfar og mikið um wining and dining í júlí og það sem af er ágúst. Óli er staðráðinn í að gera góða hluti Ástjarnarsprettinum.

á myndina vantar 10 Bjartsmenn!!
August 15th, 2010 eftir hhinriks
2 athugasemdir »

Bobbi & Eddi "Mynd sem Jórunn Rothenborg á"
Íslendingarnir voru að gera alveg hreint frábæra hluti í dag í Challenge Copenhagen. Ófáir Bjartsfélagar hafa verið sem límdir við tölvuskjái að fylgjast með verðandi járnkörlum og kerlingum og að sjá bætingu hjá eldri járnkörlum. Vignir Þór var með besta tímann af Íslendingunum 10:15:40 þrátt fyrir að hafa punkterað á fyrri hring og misst af dýrmætum tíma stopp sökum þessa. Trausti Valdimar (Legentið) var að bæta sig svakalega og kom annar af Íslendingunum í mark á 10:30:19 sem er 43 mínútna bæting frá því í fyrra, Trausti er stöðugt að bæta sig og á greinilega helling inni. Svo voru það Sigmundur (10:37:37) og Gylfi (10:39:35) sem komu í kjölfarið á mjög góðum tímum, þess má geta að það punkteraði hjá Gylfa. Ásdís Kristjánsdóttir var fyrst af konunum á fanta góðum tíma 11:49:35, Helga Árna kom svo nr. 2 á 12:44:31 og nr.3 var Hrefna Sylvía á 13:29:22. Stefán Thordar (hr. hlaup.com) og Gísli Ásgeirs voru duglegir að senda inn upplýsingar á umræðuþráð á hlaup.com og héldu netverjum vel við efnið. Á næsta ári fer stór hópur þríþrautarfólks til Kölnar nánar tiltekið í september, um er að ræða eina helgi sem er hlaðin þríþrautarkeppnum. Heyrst hefur að Bjartsmenn munu fjölmenna. Nú er um að gera að vera duglegur að æfa og muna að æfa skiptingar sem og að æfa að skipta um slöngur…
Helge Hinrichs var að gera góða hluti í dag en hann kláraði á 10:22:37, það kom aðstoðarmanni blaðamanns Bjarts verulega á óvart að hann ætti Þýskan alnafna. Það verður gaman að fylgjast með Helge í framtíðinni hann æfir víst með Kaifu tri team
August 6th, 2010 eftir Beggó
2 athugasemdir »

Ljósmyndarar: Kiddi og Albert
Tveir Bjartsmenn, Victor og Bergþór, tóku þátt í gríðarlega skemmtilegri keppni í Öskjuhlíð í gærkvöldi.
Veðri var eins og best verður á kosið .
Náðu þeir báðir að klára með sóma og er hér með skorað á Bjartsmenn að fjölmenna í keppnina að ári.
Kræktu þeir í gull og brons í sínum aldursflokki.
Sjá úrslit hér http://www.hfr.is/ghjol/urslit.asp
sjá link í myndir úr keppninni af síðu HFR.
http://notendur.hi.is/aj/mynd/2010/oskjuhlid_5_agust/