Sarpur fyrir ‘Úrslit’ flokkur

Staðan í stigakeppni Bjartsmanna

July 27th, 2010

Það eru fjögur mót sem telja til stiga í stigakeppni Bjartsmanna. Mótin sem um ræðir eru fjögur þar af tvö innanfélagsmót Meðalfellsspretturinn og Ástjarnarspretturinn og svo tvö opin mót Bláalónsþrautin og Tímakeppni Krýsuvíkurvegi . Bjartsmenn þurfa ekki að taka þátt í öllum þessum mótum því einungis árangur tveggja bestu viðburða gilda.

Staðan í stigakeppni Bjartsmanna

silber sehr schön

July 25th, 2010

silber sehr shön

Bjartsmaðurinn Helgi fékk Silfur í þríþrautarling (hálf Ólympísk þraut) sem fram fór í morgun við ágætis aðstæður í Mekka Þríþrautarinnar í Hafnarfirði. Robbi Bjartsmaður stóð sig vel í að skipuleggja og græja og var þetta mót alveg til fyrirmyndar. Örn Bjartsmaður stóð sig vel sem starfsmaður, Birgir Bjartsmaður var með myndavélina og að hvetja fólk áfram og Beggó Bjartsmaður tók flottar myndir sem má sjá hér

Heildarúrslit eru svo hér

Tímakeppni

June 2nd, 2010

Váaaa hvað veðrið var flott í kvöld þegar 42 keppendur tóku þátt í tímakeppni á Krýsuvíkurvegi á vegum Hjólamanna .  Hjólaðir voru 20km við topp aðstæður logn og sól. Það voru slatta margir áhorfendur mættir á svæðið. Bjartsmennirnir Bergþór, Victor, Óli og Örn tóku þátt og skörtuðu þeir liðsbúningi Bjartsmanna sem var rómaður af nærstöddum. Það vantaði einungis Huga, Boga, Steina og Adda á svæðið til að ná fullri mönnun.
Heiðursfélagi Bjarts (Steinn Jóhanns) náði því miður ekki að klára þar sem það punkteraði hjá honum.
Karen Axels var mætt á svæðið hjólaði gríðarlega hratt og gaf svo eiginhandaráritanir, enda eru vönduðu pistlarnir hennar á mbl.is lesnir af ÖLLUM.

Hér má sjá myndir sem Robbi tók.
Hér má sjá myndir sem Albert tók.

Úrslitin má sjá hér

Tími og niðurröðun Bjartsmanna

Sæti Karlaflokkur – 20km Flokkur Tími
16 Bergþór Jóhannsson H40 32:16
20 Viktor Þór Sigurðsson H40 33:28
23 Ólafur Baldursson H40 34:06
32 Örn Hrafnkelsson H40 38:24

Bjartsmenn komnir í liðsgallann.. Árni, Kristinn, Magni, Jóhann, Gísli, Victor, Bergþór, Óli, Örn

Úrslit í Þorláksmessusundi 2009

December 26th, 2009
Konur

1 Þórdís Hrönn Pálsdóttir 25.04
2 Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir 25.49
3 Sigríður Helga Sveinsdóttir 28.18
4 Ásta Þóra Ólafsdóttir 28.22
5 Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir 28.57
6 Ingibjörg Halldórsdóttir 29.39
7 Rannveig Anna Guicharnaud 30.17
8 Sigurbjörg Gróa Vilbergsdóttir 30.43
9 Corinna Hofmann 32.03

Karlar

1 Steinn Jóhannsson 20.15
2 Ólafur B. Einarsson 20.24
3 Arnar Felix Einarsson 21.06
4 Ríkharður Ríkharðsson 22.34
5 Einar Hauksson 23.04
6 Ásgeir Elíasson 24.02
7 Hálfdán Freyr Örnólfsson 24.02
8 Rémi Spilliaert 24.32
9 Gylfi Guðnason 25.08
10 Alexander 25.09
11 Viðar Bragi Þorsteinsson 25.12
12 Ragnar Marteinsson 25.2
13 Þorgeir Sigurðsson 26.53
14 Hartmann Bragason 26.53
15 Sigurbjörn Einarsson 26.53
16 Trausti Valdimarsson 28.09
17 Sveinbjörn Sveinbjörnsson 34.57
18 Bergur Sigfússon 36.04



Hausttvíþraut 2009

October 19th, 2009

Bræðurnir Hugi og Bogi héldu upp heiðri Bjartsmanna með því að taka þátt í hausttvíþrautinni 2009.  Keppnin skiptist upp í hlaup 4km – hjól 15km –  hlaup 4km. Keppt er í Heiðmörkinni að hluta á malarvegi og að hluta til á stígum í fallegu skóglendi.

Hér má sjá úrslitin, eins skilaði Victor af sér nokkrum myndum þær má sjá hér

Bjartsmeistari 2009

October 7th, 2009

Bogi Leiknisson vann með sóma Ástjarnarsprettinn og vann titilinn “Bjartsmeistari” 2009.  Úrslit