Sarpur fyrir ‘Hjólreiðar’ flokkur

Vika 4 í prentmiðlum

September 7th, 2010

Trendsetterarnir í Bjarti prýða prentmiðla fjórðu vikuna í röð.  Enda ekki að ástæðulausu þar sem við erum drullu nettir drengir.

Nú er það Carbón Baróninn sem ber út boðskapinn

Carbón Baróninn

Uppskeruhátið Bjartsmanna

August 29th, 2010

Uppskeruhátíð Bjartsmanna var haldin í óðali Carbón barónsins við Ástjörn í Hafnarfirði.  Dagskráin var pökkuð og var hún sem hér segir. Ástjarnarspretturinn, sturta, heitur pottur, forréttur, límið í hópnum var með fyrirlestur, sölukynning Köln 2011, aðalréttur, eftirréttur, spjall og kolvetnishleðsla fram undir morgun.  Allir voru sammála að slík uppskeruhátíð eigi sér enga hliðstæður slík var umgjörðin. Bjartsmenn þakka heiðursfélaga Bjarts Steini Jóhanns og aðstoðarmanni heiðursfélaga Bjarts Gísla Ásgeirssyni kærlega fyrir keppnisumsýslu og umsjón með verðlaunaafhendingu sem og tölfræðisamantekt ýmiskonar.  Hr. og Frú Carbón eiga miklar þakkir skilið fyrir að opna óðalið fyrir félagsmenn og eiginkonur.

Hér má sjá pistil frá Ritaranum

Úrslit í Ástjarnarsprettnum 2011

Röð Nafn á keppanda Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3 Hringur 4 Hringur 5 Lokatími
1 Helgi Hinriksson 00:08:06 00:08:09 00:08:20 00:08:19 00:08:16 00:41:10
2 Bergþór Jóhannsson 00:08:28 00:08:41 00:08:38 00:08:46 00:08:13 00:42:46
3 Árni Magnússon 00:08:06 00:08:49 00:09:01 00:08:34 00:08:23 00:42:53
4 Kristinn Samsonarson 00:08:15 00:08:27 00:08:50 00:08:49 00:09:03 00:43:24
5 Magni Þór Samsonarson 00:08:34 00:08:50 00:09:02 00:09:01 00:08:54 00:44:21
6 Viktor Þór Sigurðsson 00:08:36 00:08:53 00:09:07 00:09:05 00:09:00 00:44:41
7 Þorsteinn Lárusson 00:08:49 00:09:18 00:09:05 00:08:59 00:09:10 00:45:21
8 Birgir Gilbertsson 00:09:00 00:09:05 00:09:16 00:09:29 00:09:35 00:46:25
9 Róbert Grétar Pétursson 00:08:57 00:09:32 00:09:46 00:09:35 00:09:42 00:47:32
10 Jóhann Samsonarson 00:09:53 00:09:51 00:10:06 00:10:09 00:09:56 00:49:55
11 Ólafur Baldursson 00:09:30 00:10:18 00:10:04 00:10:26 00:10:01 00:50:19
12 Örn Hrafnkelsson 00:10:42 00:09:56 00:10:39 00:10:32 00:10:27 00:52:16
13 Hugi Hreiðarsson 00:10:27 00:11:14 00:10:39 00:10:49 00:11:27 00:54:36

Bjartsmeistari 2010 er Helgi Hinriks

Við munum birta myndir eins fljótt og mögulegt er.

If you can’t be the fastest! be the flottest!

August 27th, 2010

If you can’t be the fastest! be the flottest!*   og Bjartsmenn fá myndir af sér birtar í Morgunblaðinu

*(“quote” fengið að láni frá Haffa).

Íslandsmeistaramót í fjallahjólreiðum við Rauðavatn

August 26th, 2010

Ljósmynd: Kristinn

Fjórir Bjartsmenn mættu til leiks á Íslandsmeistaramót í fjallahjólreiðum við Rauðavatn í blíðskaparveðri klukkan 19:00 þann 25 ágúst 2010.  Um fjörtíu keppendur voru mættir og ræstir til leiks og fylltist allt af ryki, keppendur pældu lítið í því tóku sénsinn og sleiktu út um!  Keppnisbrautin er um 7km löng og eru hjólaðir fjórir hringir, það reynir á úthald, tækni og þor og eflaust best að gleyma stað, stund og fjölskyldunni í þessar c.a 100 mínútur sem þetta tekur.
Árni í Markinu kom bremsulausum Bjartsmanni til aðstoðar. Árni mætti á svæðið með bremsuborða, ekki nóg með það því hann tók með sér viðgerðamann sem var ekki að verri gerðinni við erum að tala um hann Rúnar í Hjólameistaranum og massaði hann bremsurnar í tæka tíð fyrir start.  Bjartsmenn mæla með þessum þjónustuaðilum og hvetja fólk til að snúa sér að þeim fyrirtækjum sem þeir starfa hjá.

Niðurröðun Bjartsmanna.

NR. Nafn Aldursflokkur Félag Tími
14 Helgi Hinriksson H30 Bjartur 01:38:01
15 Bergþór Jóhannsson H40 Bjartur 01:38:48
17 Victor Þór Sigurðsson H40 Bjartur 01:42:50
Fór þrjá hringi
21 Magni Þór Samsonarson H40 Bjartur 01:21:29

Félagar Bergþór og Victor stóðu svo sannarlega fyrir sínu og hrepptu annað og þriðja sætið í H40

2'að og 3'ja Ljósmynd: Kristinn

Úrslit eru hér
Undirbúningur og ræsing smella hér . Ljósmyndari : Sigurborg
Keppnin og verðlaunaafhending smella hér: Ljósmyndari : Kristinn

ps. Hvar voru Carbon Kings?

Enn eitt gullið

August 19th, 2010

Íslandsmeistaramót ITT

Þeir Bergþór, Helgi, Magni, Róbert og Viktor stigu allir hjól sín í drasl á krýsuvíkurveginum nú í kvöld.. Ástæða? Íslandsmeistaramót í Time Trail. Keppendur voru ræstir út með mínútu millibili og hjóluðu þeir 20 km í ágætum aðstæðum. Það er skemmst frá því að segja að Magni vann gull í sínum aldursflokki. Mun það bætast við í gríðarlegt safn verðlaunagripa sem Bjartur hefur sópað til sín í mótum sumarsins. Þá setti menn hljóða í nokkra stund eftir að tími Helga var lesinn upp 31 min og 57 sek. En þetta mun vera besti tími sem Bjartsmaður hefur náð í þessari vegalengd og því ljóst að ný viðmið hafa verið sett.

.Bjartur vill þakka mótshaldara, HFR, fyrir vel heppnað Íslandsmeistaramót og öðrum keppendum fyrir drengilega baráttu.

Heildarúrslit má sjá hér
Myndir e. Sigurgeir Hjólamann
Myndir e. Kristinn R. Kristinsson

Sæti KARLAFLOKKUR – 20 km Félag Flokkur tími
13 Helgi Hinriksson Bjartur H30 00:31:57
15 Bergþór Jóhannsson Bjartur H40 00:33:05
19 Viktor Þór Sigurðsson Bjartur H40 00:34:26
21 Róbert Pétursson Bjartur H30 00:36:19
Sæti B-Flokkur Karla – 20 km Félag Flokkur tími
1 Magni Þór Samsonarson Bjartur 40+ 00:34:51

Ljósmynd: Kristinn R. Kristinsson

Passa upp á græjurnar!

August 13th, 2010

Fjallahjólakeppni í Öskjuhlíð

August 6th, 2010

Ljósmyndarar: Kiddi og Albert

Tveir Bjartsmenn, Victor og Bergþór, tóku þátt í gríðarlega skemmtilegri keppni í Öskjuhlíð í gærkvöldi.

Veðri var eins og best  verður á kosið .

Náðu þeir báðir að klára með sóma og er hér með skorað á Bjartsmenn að fjölmenna í keppnina að ári.

Kræktu þeir í gull og brons í sínum aldursflokki.

Sjá úrslit hér http://www.hfr.is/ghjol/urslit.asp

sjá link í myndir úr keppninni af síðu HFR.

http://notendur.hi.is/aj/mynd/2010/oskjuhlid_5_agust/

Að hjóla í hóp getur verið hættulegt :)

August 3rd, 2010

Langaði bara til að sýna ykkur þetta myndband þar sem hópur hjólamanna er að taka sprett (held að þeir séu að nálgast mark í keppni) og einn keppandinn skyndilega tekur ekki þátt í sprettnum og þá verður smá óhapp :(

YouTube Preview Image

Hérna kemur lýsingin á myndbandinu: Crashed in the sprint today. Jeff had led out the sprint and sat up, Mondo went in front of me and moved around Jeff at the last moment, leaving him right in front of me, closing at ~20mph and only a few hundedths of a second to react. I almost avoided him, but swept his side and hooked on something. We both went down, as well as Chris and Dan behind me. My RD was broken, Chris’ frame was destroyed, and Dan was taken away in an ambulance.