Sarpur fyrir ‘Félagar’ flokkur

Vika 4 í prentmiðlum

September 7th, 2010

Trendsetterarnir í Bjarti prýða prentmiðla fjórðu vikuna í röð.  Enda ekki að ástæðulausu þar sem við erum drullu nettir drengir.

Nú er það Carbón Baróninn sem ber út boðskapinn

Carbón Baróninn

Uppskeruhátið Bjartsmanna

August 29th, 2010

Uppskeruhátíð Bjartsmanna var haldin í óðali Carbón barónsins við Ástjörn í Hafnarfirði.  Dagskráin var pökkuð og var hún sem hér segir. Ástjarnarspretturinn, sturta, heitur pottur, forréttur, límið í hópnum var með fyrirlestur, sölukynning Köln 2011, aðalréttur, eftirréttur, spjall og kolvetnishleðsla fram undir morgun.  Allir voru sammála að slík uppskeruhátíð eigi sér enga hliðstæður slík var umgjörðin. Bjartsmenn þakka heiðursfélaga Bjarts Steini Jóhanns og aðstoðarmanni heiðursfélaga Bjarts Gísla Ásgeirssyni kærlega fyrir keppnisumsýslu og umsjón með verðlaunaafhendingu sem og tölfræðisamantekt ýmiskonar.  Hr. og Frú Carbón eiga miklar þakkir skilið fyrir að opna óðalið fyrir félagsmenn og eiginkonur.

Hér má sjá pistil frá Ritaranum

Úrslit í Ástjarnarsprettnum 2011

Röð Nafn á keppanda Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3 Hringur 4 Hringur 5 Lokatími
1 Helgi Hinriksson 00:08:06 00:08:09 00:08:20 00:08:19 00:08:16 00:41:10
2 Bergþór Jóhannsson 00:08:28 00:08:41 00:08:38 00:08:46 00:08:13 00:42:46
3 Árni Magnússon 00:08:06 00:08:49 00:09:01 00:08:34 00:08:23 00:42:53
4 Kristinn Samsonarson 00:08:15 00:08:27 00:08:50 00:08:49 00:09:03 00:43:24
5 Magni Þór Samsonarson 00:08:34 00:08:50 00:09:02 00:09:01 00:08:54 00:44:21
6 Viktor Þór Sigurðsson 00:08:36 00:08:53 00:09:07 00:09:05 00:09:00 00:44:41
7 Þorsteinn Lárusson 00:08:49 00:09:18 00:09:05 00:08:59 00:09:10 00:45:21
8 Birgir Gilbertsson 00:09:00 00:09:05 00:09:16 00:09:29 00:09:35 00:46:25
9 Róbert Grétar Pétursson 00:08:57 00:09:32 00:09:46 00:09:35 00:09:42 00:47:32
10 Jóhann Samsonarson 00:09:53 00:09:51 00:10:06 00:10:09 00:09:56 00:49:55
11 Ólafur Baldursson 00:09:30 00:10:18 00:10:04 00:10:26 00:10:01 00:50:19
12 Örn Hrafnkelsson 00:10:42 00:09:56 00:10:39 00:10:32 00:10:27 00:52:16
13 Hugi Hreiðarsson 00:10:27 00:11:14 00:10:39 00:10:49 00:11:27 00:54:36

Bjartsmeistari 2010 er Helgi Hinriks

Við munum birta myndir eins fljótt og mögulegt er.

Óli mætti

August 18th, 2010

Bjartsmenn eru alveg við það að detta í gírinn eftir sumar og æfinga frí!  Það sem er framundan hjá Bjartsmönnum er uppskeruhátíð sem hefst með Ástjarnarsprettinum, í þeirri keppni eru hjólaðir fimm hringir í kringum Ástjörnina í Hafnarfirði, menn eru ræstir út með 30 sekúnda millibili og sá sem sigrar fær 22.000 stig að launum og á stóra möguleika á að verða krýndur titlinum Bjartsmeistari 2010.  Það stefnir allt í góða mætingu í viðburð þennan sem endar svo með húllum hæ um kvöldið.

Myndin sem fylgir þessum pistli er söguleg í þeim skilningi að Óli (límið í hópnum) mætti á æfingu!  Óli hefur verið duglegur að mæta í keppnir og það þá helst í júní, en síðan er runnið mikið vatn til sjáfar og mikið um wining and dining í júlí og það sem af er ágúst. Óli er staðráðinn í að gera góða hluti Ástjarnarsprettinum.

á myndina vantar 10 Bjartsmenn!!

Staðan í stigakeppni Bjartsmanna

July 27th, 2010

Það eru fjögur mót sem telja til stiga í stigakeppni Bjartsmanna. Mótin sem um ræðir eru fjögur þar af tvö innanfélagsmót Meðalfellsspretturinn og Ástjarnarspretturinn og svo tvö opin mót Bláalónsþrautin og Tímakeppni Krýsuvíkurvegi . Bjartsmenn þurfa ekki að taka þátt í öllum þessum mótum því einungis árangur tveggja bestu viðburða gilda.

Staðan í stigakeppni Bjartsmanna

Meðalfellsspretturinn “nýtt heimsmet!”

July 23rd, 2010

Magnaður Meðalfellssprettur var haldinn fimmtudaginn 15 júlí síðastliðinn. Keppnin samanstóð að sundi í Meðalfellsvatni 300 metrar, hjólað í kringum Meðalfell 25 kílómetrar og í lokin var hlaupið í kringum Meðalfellsvatn 8 kílómetrar.  Um sannkallaða fjölskylduferð var að ræða og fengu allir hlutverk við hæfi! Hugi sá um skipulag keppninnar frá A-Ö og stóð sig hrikalega vel í því hlutverki sem og hann bókaði frábært veður þennan dag.  Tuddanum Bjarti var slátrað af þessu tilefni og var hann góður.

» Lesa meira: Meðalfellsspretturinn “nýtt heimsmet!”

Er þetta okkur að kenna?

July 6th, 2010

Var að rekast á þessa frétt með Jón Gnarr og Facebook
Ég get ekki betur séð en að við höfum komið Borgarstjóranum á bragðið með okkar pistli með kynninguna á blaðamanni Bjarts
Hugsanlega höfum við komið Rick Astley á kortið með pistli okkar, en ég vil ekki fullyrða neitt um það.

Með Atla yfir Þorskafjarðarheiði!

June 30th, 2010

Hjólaferð með Atla mág.

Atli mágur

Langþráðu takmarki var náð nú í júní er mér tókst að fá Atla mág minn til að hjóla með
mér, við vorum þá staddir með fjölskyldum okkar í sveitinni
Þar sem stefna var sett á hálfan járnkarl dugði ekki að sitja aðgerðarlaus með
fjölskyldunni alla helgina. Ákveðið var að slá tvær flugur í einu höggi með því að hjóla
til Hólmavíkur, hitta þar fjölskylduna og fara í sund. Ég sagði við konuna að við yrðum
komnir eftir ca 2 ½ – 3 klst í Hólmarvíkurlaug og síðan lögðum við Atli af stað með Gu-
ið góða og 4 orkustangir í bakpokanum. Ég var í stuttbuxum og léttum bol en Atli var í
síðbuxum og með flíspeysu.
Byrjunin var kannski ekki sú þægilegasta en fyrstu 7 km voru með 500 m hækkun og
bröttustu kaflarnir með 20% halla. Urðu sumir því fljótt blautir af svita. Kom í ljós að
Scott stýrinn eru ágætis koddar þegar við á. Þegar brekkan var liðlega hálfnuð sá ég
fram á að sundferðin hjá konu og börnunum yrði í lengra lagi.
Reyndar fór Atli í tvær sundferðir, sú fyrri aðeins kaldari en honum var orðið ansi heitt
eftir brekkuna góðu.

Konan hringdi í mig á umsömdum tíma þ.e. eftir 2 tíma en þá áttum við nú ennþá langt
í land. Henni var hætt að lítast á blikuna og skammaði mig fyrir meðferðina á mági
mínum, þetta var nú einu sinni fyrsta alvöru hjólaferðin hans. Hún bauðst til þess að
sækja okkur en það var ekki hægt því við vorum upp á miðrið heiði í algjörri vegleysu
auks þess kvaðst Atli vilja klára það sem við höfðum byrjað á.
„Jæja, eigum við ekki að taka á því núna Atli“, voru orð sem hljómuðu af mínum vörum
nokkrum sinnum á leiðinni. En þetta sagði ég iðulega eftir að hafa hvílt mig og smellt
af nokkrum myndum. Þegar liðlega 3 klukkustundir voru liðnar á ferðinni og þolinmæði
Atla var á þrotum sagði hann með nokkru þjósti að það væri almenn kurteisi a.m.k í
gönguferðum að síðasti maður segði hvenær lagt væri aftur af stað eftir hvíld. Voru
þessi hvatningarorð mín því ekki meira notuð það sem eftir var ferðar. Við komust
loks til Hólmavíkur eftir liðlega 4 klst ferðalag við mikil fagnaðarlæti konu og barna.
Við skelltum okkur síðan í sund eins og planið var bara aðeins seinna en til stóð
Frábær ferð sem seint gleymist.
Hér má sjá fleiri myndir af viðburðinum

Staðan!

June 29th, 2010

Það eru þrjú mót sem gefa stig í stigakeppni Bjartsmanna. þau mót sem um ræðir eru Bláalónsþrautin (fjallahjól), Meðalfellsþrautin (þríþraut) og Ástjarnarspretturinn (fjallahjól). Einungis tvö bestu mótin telja og sá aðili sem er með flest stig stendur uppi sem sigurvegari og hlýtur titilinn „Bjartsmeistari“. Bjartsmenn eru hógværir og gefur besti árangur Bjartsmanna tuttugu og tvöþúsund stig og lakasti árangurinn þúsund stig. Mögulega verður tekið upp eitthvert refsistiga fyrirkomulag en það á eftir að taka upp á sér fundi sem haldin verður af stiganefnd. Hér fyrir neðan má glöggva sig á stöðunni eftir að eitt mót hefur verið haldið.