Sarpur fyrir ‘Efni’ flokkur

Félagaskiptaglugginn opnaðist

September 9th, 2010

Bjartur hefur verið að skoða nýja þríþrautarmenn fyrir komandi tímabil og í dag var gerður ótímabundinn uppeldissamningur við Gunnar Stefánsson. Gunnar þykir efnilegur þríþrautarmaður og mun án efa styrkja unglingalandslið Bjarts. Ferilskráin talar sínu máli þó að við í Bjarti setjum stórt spurningarmerki við tímann í Reykjavíkurmaraþoni 2008. Við bjóðum hann velkominn og vonum að hann eigi eftir að stríða þeim eldri.

Smellið hér til að skoða umsókn og ferilskrá Gunnars.

Gunnari afhent Bjarts-derhúfan eftir undirritun samnings í dag. F.v. Örn Elding, Helgi Hinriksson, Gunnar Stefánsson og heiðursfélaginn Steinn Jóhannsson.

bjartur á nýjar slóðir – bjartur.org

September 7th, 2010

Umfjöllun um Ástjarnarsprettinn

September 1st, 2010
Ástjarnarspretturinn

Heimild: fjardarposturinn.is

Rvk MARAÞON 2010

August 22nd, 2010

Addi að koma í mark

Það var nýstingskuldi og rok þegar undirritaður hjólaði á fjallahjóli á mótsstað klukkan 08:00 að morgni 21 ágúst 2010, einungis klæddur í stuttbuxur, bol og jakka. Þetta verður kaldur dagur og eflaust erfitt að hlaupa í svona kulda var hugsunin. Hjólað var sem leið lá að Geirsgötu hitti þar Árna Magg sem var búinn að merkja sér svæði en eiginkona hans María Kristín Gröndal var að hlaupa hálfmaraþon og stefndi á að hlaupa undir 1:30 sem er náttúrulega alveg frábært markmið.
Að sjálfsögðu voru Bjartsmenn að taka þátt í þessum viðburði! að  þessu sinni voru það Addi 21.1km, Örn 21.1km , Steini 10km og Hugi 10km.  Við Árni reyndum eftir bestu getu að hvetja okkar menn og konu, hvatningar óp okkar bárust í eyru Maríu og Adda, Örn, Steini og Hugi misstu því miður af okkur.  María náði hrikalega flottum tíma og varð í öðru sæti virtist ekkert hafa fyrir þessu. Addi tók break bylgju sem náðist því miður ekki á mynd og og gaf í og náði mjög flottum tíma (sjá mynd)og langt undir settu markmiði sem var 1:45:01 !!!!
Þegar líða fór á morguninn snarhlýnaði og vind lægði og það varð bara ágætis veður og svakaleg stemming í bænum.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka – hálfmaraþon
Reykjavík – 21. ágúst 2010
Tímar innan sviga – millitími eftir 10km og flögutími (chip time)

Heildarúrslit / Total results

29 01:27:04 (41:37/1:26:57) María Kristín Gröndal 1980 20 – 39 ára IS220 Hlaupahópur FH 2
88 01:34:58 (45:47/1:34:28) Arnar Eldon Geirsson 1971 20 – 39 ára IS220 BH
164 01:39:34 (  46:41/1:39:16) Örn Hrafnkelsson 1967 40 – 49 ára IS220 Hlaupahópur FH 3

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka – 10km
Reykjavík – 21. ágúst 2010

Heildarúrslit / Total results

561 51:09 (49:36) Þorsteinn Lárusson 1970 40 – 49 ára IS225
562 51:09 (49:38) Hugi Hreiðarsson 1970 40 – 49 ára IS200

Passa upp á græjurnar!

August 13th, 2010

Að hjóla í hóp getur verið hættulegt :)

August 3rd, 2010

Langaði bara til að sýna ykkur þetta myndband þar sem hópur hjólamanna er að taka sprett (held að þeir séu að nálgast mark í keppni) og einn keppandinn skyndilega tekur ekki þátt í sprettnum og þá verður smá óhapp :(

YouTube Preview Image

Hérna kemur lýsingin á myndbandinu: Crashed in the sprint today. Jeff had led out the sprint and sat up, Mondo went in front of me and moved around Jeff at the last moment, leaving him right in front of me, closing at ~20mph and only a few hundedths of a second to react. I almost avoided him, but swept his side and hooked on something. We both went down, as well as Chris and Dan behind me. My RD was broken, Chris’ frame was destroyed, and Dan was taken away in an ambulance.

Fjallahjólakeppni í Póllandi

July 20th, 2010

Hann Kári Brynjólfsson tók þátt í flottri fjallahjólakeppni sem fór fram í Póllandi. Ekki er annað að sjá nema að þetta hafi verið mjög skemmtileg keppni, allaveganna sýnist mér að brautin hafi verið skemmtileg og boðið uppá allt það sem góð fjallahjólakeppni hefur uppá að bjóða.

Ps. lappirnar á stillimyndinni í upphafi eru lappirnar hans Kára :)

Extra langur járnkall :)

July 15th, 2010

Bandaríkjamaðurinn Charlie Wittmack ætlar að synda yfir Ermasund, hjóla til Indlands og klífa Everest. Ætlar hann að vera kominn að Everest 25 maí á næsta ári. Þetta er semsagt long distance Ironman hehehe. Á myndinni hér fyrir neðan er hægt að sjá hann Charlie synda.

Charlie Wittmack

Hér er linkur á fréttina.