Steinn heiðursfélagi Bjarts er að gera góða hluti í Köln sem stendur.
Hér er hægt að fylgjast með honum í gegnum tracker
Svo eru heildar úrslit hér
Svo eru lifandi umræður á hlaup.com sjá hér
Steinn heiðursfélagi Bjarts er að gera góða hluti í Köln sem stendur.
Hér er hægt að fylgjast með honum í gegnum tracker
Svo eru heildar úrslit hér
Svo eru lifandi umræður á hlaup.com sjá hér
Íslendingarnir voru að gera alveg hreint frábæra hluti í dag í Challenge Copenhagen. Ófáir Bjartsfélagar hafa verið sem límdir við tölvuskjái að fylgjast með verðandi járnkörlum og kerlingum og að sjá bætingu hjá eldri járnkörlum. Vignir Þór var með besta tímann af Íslendingunum 10:15:40 þrátt fyrir að hafa punkterað á fyrri hring og misst af dýrmætum tíma stopp sökum þessa. Trausti Valdimar (Legentið) var að bæta sig svakalega og kom annar af Íslendingunum í mark á 10:30:19 sem er 43 mínútna bæting frá því í fyrra, Trausti er stöðugt að bæta sig og á greinilega helling inni. Svo voru það Sigmundur (10:37:37) og Gylfi (10:39:35) sem komu í kjölfarið á mjög góðum tímum, þess má geta að það punkteraði hjá Gylfa. Ásdís Kristjánsdóttir var fyrst af konunum á fanta góðum tíma 11:49:35, Helga Árna kom svo nr. 2 á 12:44:31 og nr.3 var Hrefna Sylvía á 13:29:22. Stefán Thordar (hr. hlaup.com) og Gísli Ásgeirs voru duglegir að senda inn upplýsingar á umræðuþráð á hlaup.com og héldu netverjum vel við efnið. Á næsta ári fer stór hópur þríþrautarfólks til Kölnar nánar tiltekið í september, um er að ræða eina helgi sem er hlaðin þríþrautarkeppnum. Heyrst hefur að Bjartsmenn munu fjölmenna. Nú er um að gera að vera duglegur að æfa og muna að æfa skiptingar sem og að æfa að skipta um slöngur…
Helge Hinrichs var að gera góða hluti í dag en hann kláraði á 10:22:37, það kom aðstoðarmanni blaðamanns Bjarts verulega á óvart að hann ætti Þýskan alnafna. Það verður gaman að fylgjast með Helge í framtíðinni hann æfir víst með Kaifu tri team
Ég hef verið undir gríðarlegri pressu að skrifa smá pistil um hálfa járnkarlinn sem ég fór í um daginn. Nokkuð langt er síðan ég varð fyrir slíkri áþján og líklegast er að ég hafi ekki upplifað hana áður. Það er því léttir mikill fyrir mig að koma þessu frá mér.
Hér er sem sagt keppnissagan.
Við stolt okkar Hafnfirðinga og mesta mannvirki sem hér hefur risið (fyrir utan Álverið góða) byrjaði keppnin 11. júlí 2010 með 1900 m löngu sundi. Svo undarlega vildi til að ég lenti á braut með ekki ófrægari mönnum en Steini, Torben og Baldri, allir afburðasundmenn. Jæja, syndi af stað í þennan hálfkarl og mér fannst menn fara fullhægt af stað en svo var nú ekki og þurfti maður fljótlega að taka á því. Reyndi ég að halda í við Baldur en gat það nú ekki í nema svona 300 metra, ekki sáttur við að hafa ekki einhvern til að drafta. » Lesa meira: Hálfur járnkarl…..
Bjartsmaðurinn Helgi fékk Silfur í þríþrautarling (hálf Ólympísk þraut) sem fram fór í morgun við ágætis aðstæður í Mekka Þríþrautarinnar í Hafnarfirði. Robbi Bjartsmaður stóð sig vel í að skipuleggja og græja og var þetta mót alveg til fyrirmyndar. Örn Bjartsmaður stóð sig vel sem starfsmaður, Birgir Bjartsmaður var með myndavélina og að hvetja fólk áfram og Beggó Bjartsmaður tók flottar myndir sem má sjá hér
Heildarúrslit eru svo hér
Magnaður Meðalfellssprettur var haldinn fimmtudaginn 15 júlí síðastliðinn. Keppnin samanstóð að sundi í Meðalfellsvatni 300 metrar, hjólað í kringum Meðalfell 25 kílómetrar og í lokin var hlaupið í kringum Meðalfellsvatn 8 kílómetrar. Um sannkallaða fjölskylduferð var að ræða og fengu allir hlutverk við hæfi! Hugi sá um skipulag keppninnar frá A-Ö og stóð sig hrikalega vel í því hlutverki sem og hann bókaði frábært veður þennan dag. Tuddanum Bjarti var slátrað af þessu tilefni og var hann góður.
Bandaríkjamaðurinn Charlie Wittmack ætlar að synda yfir Ermasund, hjóla til Indlands og klífa Everest. Ætlar hann að vera kominn að Everest 25 maí á næsta ári. Þetta er semsagt long distance Ironman hehehe. Á myndinni hér fyrir neðan er hægt að sjá hann Charlie synda.
Hér er linkur á fréttina.
Það er frábær tilfinning að renna yfir marklínuna eftir að hafa náð settu markmiði.
Markmiðið var að klára hálfan járnkarl 11 júlí 2010, til þess að ná því markmiðið var stuðst við tuttugu vikna æfingaáætlun sem tryggir að allar þrjár greinarnar séu þjálfaðar í samræmi við vægi.
Árið 2010 hefur því verið alkóhól laust, einkennst af þéttum æfingum og öguðu mataræði, allt gert til að ná hámarks árangri.
Nokkrum dögum fyrir keppni fór ég yfir ástandið á hjólinu kannaði hvort að þar væri eitthvað sem þyrfti að sinna sérstaklega þ.e.a.s hvort þörf væri á aðkomu sérfræðings! en svo var ekki. Hjólið þrifið og hnakktaskan yfirfarin . Steinn lánaði mér píputösku og í hana setti ég sex kubba af snickers í opnum umbúðum, þrjár salttöflur, þrjár íbúfen (v. bakverkja) og hálfur þrúgusykurs pakki sem ég fékk í skráningunni daginn áður. » Lesa meira: Keppnis-Helgi-Hinriks