
Victor (liggur), Jóhann, Streini, Addi, Helgi, Magni, Bergþór, Hugi, Óli (á myndina vantar 6 Bjartsmenn)
Hjólreiðafélagið Bjartur er hópur af mönnum sem hafa það sameiginlegt að stunda heilbrigða hreyfingu. Þær íþróttagreinar sem eru efst á bugi eru hjólreiðar, hlaup og sund. Markmið einstaklinga innan hópsins eru mismunandi bæði hvað varðar íþróttagreinar og hvað mikið menn vilja leggja á sig. Sumir ætla sér stóra hluti eins og fara í Ironman en aðrir vilja bara góðan félagsskap til að stunda sýna íþrótt.
Upphaf Bjarts má rekja ca 2 ár aftur í tímann en þá voru nokkrir núverandi meðlimir Bjarts með lið (Team Komatsu) og tóku þátt í nokkrum hjólreiðakeppnum, Bláalónsþrautinni og Heiðmerkur áskoruninni. Svo vatt sá félagsskapur uppá sig og breytist í Hjólreiðafélagið Bjart.
Meðlimir eru á breiðu aldursbili, en við erum allir ungir í anda. Búið er að halda okkar fyrstu uppskeruhátíð (19 september 2009) og tókst hún frábærlega þar sem meistari Bjarts var krýndur í fyrsta sinn. Til að fá þann heiður verður maður að vinna hjólreiðakeppni sem haldin er sama dag og uppskeruhátíðin er.
Stefna meðlimir félagsins og koma með logo og vera með æfinga búninga, er það gert til að auka á ánægju og áhuga félagsmanna í hópnum.
Í vetur verða fastar hjólaæfingar, á miðvikudögum klukkan 20:00 hittumst við Ásvallalaug (ca. 1 til 1.5 klst.) svo ein helgaræfing á sunnudögum klukkan 09:00 hittumst við Ásvallalaug (2 til 3 klst. )
Eins og er eru fastar sundæfingar hjá nokkrum í Bjarti, þ.e.a.s. alla morgna á virkum dögum um kl 6.00 í Ásvallalaug og aðrir eru að mæta á sundæfingar með Sundfélagi Hafnarfjarðar (SH).
Hafa samband bjartur (hjá) internet.is


