Hver er maðurinn?

July 27th, 2010 eftir hfbjartur Skildu eftir svar »


Þegar skoðaðar eru hjólamyndir 10 ár aftur í tíman má sjá andlit sem eru enn í bransanum og geta fallið í flokkinn brautryðjendur í sportinu hér á fróni. Nú vörpum við fram spurningunni “hver er maðurinn?” (sjá mynd). Aldrei að vita nema að sigurvegarinn fái verðlaun fyrir rétta ágiskun

spurt er um hver er maðurinn.. sá fremsti í röðinni

Auglýsing

13 athugasemdir

  1. Steinn says:

    Þetta er allt of auðvelt hjá ykkur. Þetta er Róbert sjálfur og sennilega tekið þegar hann var upp á sitt besta í hjólreiðunum, eða um 2000.

  2. hhinriks says:

    Já ætli peysan hafi ekki komið upp um hann?
    Eða mögulega þessi svaðalegu lærvöðvar… :)

  3. Robbi says:

    Þetta var árið sem ég fór Bláa lónið á 2:07:25 og lenti í þriðja sæti :) . Verð að taka það fram að þá var ekki búið að malbika eins mikið og í dag. Frekar stoltur af þessum tíma.

  4. admin says:

    Steinn verlaunin eru ekki af verri endanum.

    Þú getur valið á milli þess að vera tímavörður hjá Hjólreiðafélaginu Bjarti í Ástjarnarsprettinum 28. ágúst komandi.

    Eða fengið lánaða þessa fínu Scott treyju á eina æfingu. Já nákvæmlega Scott treyjan sem Robbi var í árið 2000 þegar þessi mynd er tekin

  5. Robbi says:

    Svo bara til að setja þetta í samhengi við umræðuna hennar Karenar, http://www.mbl.is/mm/folk/serefni/pistlar/karen/entry.html?entry_id=1080073 um hvernig formi maður var í fyrir 10 árum. Það er greinilegt að ég er ekki í betra formi núna en fyrir 10 árum. En þarna var maður pro sko með rakaðar lappir og alles

  6. Steinn says:

    Eg mæti á Ástjarnarsprettinn sem áhorfandi og get verið tímavörður. Það verður gaman að horfa á ykkur félagana taka á því.

  7. Corinna says:

    Já hann hefur nú ekki breyst míkið – Robert fremst. En er það Carbon King Margeir þar á eftir??

  8. hhinriks says:

    Nei ég held að Margeir hafi ekki verið fæddur þarna á þessum tíma, þetta er það gamalt !!!

  9. Le petit prince says:

    En þessi fyrir aftan “ekki margeir”, er þetta ekki einhver fransmaður sem kom hérna seint á síðustu öld?

  10. Robbi says:

    Mig minnir að hann heiti Óttar, er 99% viss :)

  11. Corinna says:

    Hvenær verður Ástjarnaspretturinn? Vantar ykkur ekki klapplið? Eða fólk á drykkjarstöðina ;-) ?

  12. Robbi says:

    Ástjarnarspretturinn verður haldinn 28. ágúst næstkomandi. Veit ekki alveg klukkan hvað keppnin byrjar. En það er alltaf gaman að hafa klapplið :)

  13. Jói Le says:

    Auðvitað er það Robbi, næstu menn eru síðan Óttar, Remi, Bjarki og undirritaður.