Meðalfellsspretturinn “nýtt heimsmet!”

July 23rd, 2010 eftir hfbjartur Skildu eftir svar »


Magnaður Meðalfellssprettur var haldinn fimmtudaginn 15 júlí síðastliðinn. Keppnin samanstóð að sundi í Meðalfellsvatni 300 metrar, hjólað í kringum Meðalfell 25 kílómetrar og í lokin var hlaupið í kringum Meðalfellsvatn 8 kílómetrar.  Um sannkallaða fjölskylduferð var að ræða og fengu allir hlutverk við hæfi! Hugi sá um skipulag keppninnar frá A-Ö og stóð sig hrikalega vel í því hlutverki sem og hann bókaði frábært veður þennan dag.  Tuddanum Bjarti var slátrað af þessu tilefni og var hann góður.

Mættir:
Árni + fjölskylda (sund – hjól – hlaup)
Birgir + fjölskylda (sund – hjól)
Kristinn + fjölskylda (hjól)
Robbi + fjölskylda (hjól)
Helgi + fjölskylda (sund – hjól – hlaup)
Steini + fjölskylda (hjól – hlaup)
Hugi + sonur (Guðfaðir Meðalfellssprettsins) (sund – hjól – hlaup)
Magni mætti Solo (hjól)
Victor kom á hjóli, keppti á hjóli og fór heim á hjóli (hjól)

Starfsmenn:
Jóhann mætti Solo tímavörður
Óli mætti solo í keppnisgallanum en tók einungis þátt í mórölskum stuðningi, stóð sig gríðarlega vel.

Fjarverandi:
Addi (drukkinn í bænum)
Beggó (drukkinn fyrir austan)
Bogi (drukkinn fyrir norðan)
Gísli (teljum að hann hafi verið drukkinn)
Örn (vissum ekkert hvar hann var, eflaust drukkinn)

Þessi keppni er klárlega orðin ein af aðal keppnum Bjartsmanna.  Helgi stóð uppi sem sigurvegari að þessu sinni fékk hann í hendurnar farandbikar til vörslu í eitt ár.  Hér má sjá niðurröðun eftir greinum við munum birta tímana síðar, en menn eru á því að þarna var klárlega sett nýtt heimsmet!
sund 300m: 1. Helgi  - 2. Birgir  - 3. Hugi
hjól 25km: 1. Helgi  - 2. Magni – 3. Kristinn
hlaup 8km: 1. Helgi – 2.Steini  - 3. Árni

Við munum fljótlega birta niðurstöður í stigakeppni Bjartsmanna

Sundið

YouTube Preview Image

Hjólið

YouTube Preview Image

Myndir

Auglýsing

3 athugasemdir

  1. Birgir says:

    Ótrúlega skemmtileg keppni og flottur félagsskapur. Hugi á mikið hrós skilið fyrir frábært skipulag.

  2. Robbi says:

    Já það er satt Birgir þetta er frábær keppni. Skipulagið alveg til fyrirmyndar. Svo er eitt sem ég skil ekki og það er hvernig Hugi fær alltaf gott veður :) . Það er pottþétt ég tekk allar þrjár þrautirnar á næsta ári.

  3. Robbi says:

    Já vildi bara láta ykkur vita að ég er með eitthvað af myndum og þær verða settar inn á heimasíðuna eins fljótt og hægt er :) , sem sagt þegar ég nenni hahahah.