Það er frábær tilfinning að renna yfir marklínuna eftir að hafa náð settu markmiði.
Markmiðið var að klára hálfan járnkarl 11 júlí 2010, til þess að ná því markmiðið var stuðst við tuttugu vikna æfingaáætlun sem tryggir að allar þrjár greinarnar séu þjálfaðar í samræmi við vægi.
Árið 2010 hefur því verið alkóhól laust, einkennst af þéttum æfingum og öguðu mataræði, allt gert til að ná hámarks árangri.
Nokkrum dögum fyrir keppni fór ég yfir ástandið á hjólinu kannaði hvort að þar væri eitthvað sem þyrfti að sinna sérstaklega þ.e.a.s hvort þörf væri á aðkomu sérfræðings! en svo var ekki. Hjólið þrifið og hnakktaskan yfirfarin . Steinn lánaði mér píputösku og í hana setti ég sex kubba af snickers í opnum umbúðum, þrjár salttöflur, þrjár íbúfen (v. bakverkja) og hálfur þrúgusykurs pakki sem ég fékk í skráningunni daginn áður.
Pakkaði í tösku þeim fatnaði sem ég hugðist keppa í sem og aukafatnaður ef ske kynni að veðrið færi að stríða okkur. Það kom sér vel að hafa gert tékklista fyrir hverja grein svo að það færi örugglega allt í töskuna. Keppnisdaginn vaknaði ég fimmtán mínútur í sex, fékk mér einn dl. af hafragraut + eina skeið af skyri sem ég hrærði út í dash af hunangi + ögn af kanil setti svo í lokin eina lúku af All Bran. Þessi blanda er vægast samt algjört sement! það er frekar erfitt að koma þessu niður en það hafðist. Hálftíma síðar fékk ég mér eina ristaða brauðsneið og skolaði henni niður með vatni. Tók með mér einn banana sem ég borðaði svona klukkutíma fyrir keppni. Ég blandaði saman isótónískum drykk í þrjá brúsa og setti eina skeið af prótein út í hvern brúsa,
en ég merkti mér brúsa með rásnúmeri sem ég fékk svo afhenta eftir óskum í hjólaleggnum. Pumpaði í dekkin setti þrýstinginn í 120psi og allt klárt.
Hjólaði niður í Ásvallalaug, var mættur nokkuð tímalega á skiptisvæðið til að stilla öllu upp, tók smá skokk um svæðið, fann að ég var tilbúinn í verkefnið ekkert sérstaklega kvíðinn en það hefur einkennt mig fyrir keppnir að vera stöðugt mál að pissa svo var ekki þennan daginn! Eftir að Róbert keppnisstjóri var búinn að halda stutta tölu var komið að því að fara í laugina og hita ögn upp. Í upphituninni heyrði ég köll frá sonum mínum er þeir voru að reyna að ná athygli föður síns, að sjálfsögðu stoppaði ég og veifaði þeim þar sem þeir voru upp í stúku með mömmu sinni og ömmu. Yndislegt að fá stuðning fá fjölskyldunni á svona stundu.
Sund 1.9km: (32:38)
Ég var settur á braut sjö með svakalegum köppum þeim Vigni, Gylfa og Trausta þeir félagar eru allir á leiðinni í Challenge Copenhagen sem verður haldin 15. ágúst 2010. Ég byrjaði á því að leiða sundið og líðan góð allan tímann tók nú samt ekki alltaf snúninga veit ekkert af hverju. Eftir að hafa leitt um að ég held helming vegalengdar tók Gylfi fram úr mér og hengdi ég mig á hann um tíma þar til það voru svona þrjúhundruð metrar eftir þá missti ég hann. Vippaði mér auðveldlega upp á bakkann án átaka og sá að klukkan var 32:38 sem er ekkert sérstaklega góður tími hafði synt þetta sund hraðar á æfingu. Greip með mér handklæði og þurrkaði mér á hlaupum.
T1 skiptisvæði: (01:57)
Þegar ég kom að hjólinu byrjaði ég á því að fara í hlaupasokkana, fór í hjólaskóna og setti á mig númerabeltið sem Hildur systir hannaði fyrir mig setti svo á mig ermarnar, hjálminn og endaði á því að setja á mig sólgleraugu. Þetta gekk allt saman nokkuð vel ég var samt sem áður frekar mikið að flýta mér og að pirrast á því hvað hlutirnir gengu hægt en þá heyrði ég útundan mér „Þetta gengur vel hjá þér“ „þú ert á fínum tíma“ „Ekkert stress“, þarna var Addi Geirs vinur minn að munda myndavélina og hvetja félagann áfram. Ótrúlegt hvað þetta hafði góð áhrif á mig. Því næst þurfti ég að hlaupa á hjólaskónum út af skiptisvæðinu og koma mér upp á hjólið.
Hjól 90km (02:34:51 – skiptitími 01:24 34.87km meðalhraði)
Var í smá vandræðum að koma mér í petalanna fipaðist eitthvað og fór út af göngustígnum, það kom samt ekki að sök og þegar allt var eins og það átti að vera gaf ég í. Vinstra eyrað á mér var blokkað eftir sundið og truflaði það mig aðeins náði að berja mig í hausinn til að losna við það (eflaust verið furðuleg sjón!). Þegar kom að því að hjóla út af stígnum og út á götu var ég á of miklum hraða og þurfti að negla niður (læsa afturdekkinu) til að ná beygjunni, það slapp. Svo var bara að stíga út á Krýsuvíkurveg. Hjólið gekk vel ég var búinn að stilla Garmin þannig að ég fékk viðvörun á fjörtíu mínútna fresti til að taka inn GU gelið þess á milli fékk ég mér snickers bita og drakk. Hákon Hrafn tók fljótlega fram úr mér (þarf að semja við Hákon um að fá hjá honum hjólaprógramm!!). Ég hjólaði uppi fjóra kappa sem voru á undan mér í sundinu. Ég var mjög frískur og náði að skila góðum krafti á sveifarnar fann aldrei fyrir orkuleysi, hjólaði mig að vísu upp í þá stöðu að vera við það að fá krampa, þegar svo var komið þá létti ég um gír og snéri hraðar fékk mér tvær salttöflur þegar þetta gerðist. Tíminn á hjólinu var furðu fljótur að líða við vorum gríðarlega heppin með veður. Það var algjört logn til að byrja með og svo byrjaði að koma andvari sem endaði í gjólu sem að maður hafði í fangið á leiðinni til baka niður Krýsuvíkurveginn. Ég fann aldrei fyrir kulda.
T2 skiptisvæði (01:24)
Þegar komið var inn á skiptisvæðið byrjaði ég á því að skutla hjólinu í rekkann taka af mér hjálminn og því næst fór ég úr hjólaskónum, þá gerðist það, ég krampaði þvílíkt framan á hægra læri, vöðvarnir að framan voru alveg glerharðir ég náði að koma mér úr skónum og fara í hlaupaskóinn reima hann á mig án þess að tapa miklum tíma. Ég hugsaði omfg þetta verður erfitt. Setti á mig derhúfuna og út á hlaupabrautina.
Hlaup 21.1km (01:40:43)
Stífleiki og sárir verkir framan á hægra læri rétt fyrir ofan hné einkenndu fyrstu einn til tvo kílómetrana, mér var litið á garmin og sá avg pace var 4:30 varð frekar hissa og hugsaði nei ég á nú ekki eftir að halda þetta út á þessu pace‘i rifjaði upp orð Bigga Sævars félaga að það væri gott að byrja hlaupin yfirvegað og bæta svo í hraðann þegar líður á. Ég var s.s að gera akkúrat öfugt við þau orð. En þegar staðan var þannig að ég var í fjórða sæti með Gylfa og Vigni ofurhlaupara fyrir aftan mig þá er ekki hægt að gera neitt annað en að gefa sig allan í verkefnið. Fljótlega mætti ég Torben hann var mjög einbeittur og pottþétt að hugsa að hann ætlar ekki að láta Stein ná sér, svo leið slatta langur tími til ég mætti Hákoni og svo Steini, held ég hafi sagt upphátt við sjálfan mig „Steinn á ekki eftir að geta lokað þessu bili“ annað kom heldur betur á daginn. Þegar ég klára snúning númer tvö við endakeilu koma þessir svakalegu verkir framan á hægra læri við hnéð, vöðvarnir voru alveg spenntir og var gríðarlegur sársauki þegar löppin nam við götuna í hverju skrefi „er þetta búið“ poppaði upp í huga mér neeeiiii andskotinn „pain is weakness leaving the body“ beit á jaxlinn svo fljótlega koma þeir Gylfi og Vignir bara á tjattinu fram úr mér. Sælir félagar, þar fór þriðjasætið í mínum aldursflokki. Þá tók við næsta hugsun „Hvar er Trausti Valdimars?“ ætla ekki að láta legentið hafa mig. Restin af hlaupinu snérist um það að klára hlaupið og passa að bilið á milli mín og Trausta væri óyfirstíganlegt fyrir hann. Það tókst nema hvað Steinn Jóhanns nær að hringa mig rétt fyrir síðasta snúninginn minn. Steinn er hágæða járnkarl, hann var búinn að loka bilinu á milli sín og Torben. Ég var rétt fyrir aftan Stein þegar við mættum Gísla Ásgeirs, Gísli rekur upp einhver svakaleg hvatningsorð til Steins KOMASO „$%“=“!! . Þetta var í eina skiptið sem ég heyrði í Gísla hann var frekar einbeittur. Steinn hleypur í gegnum markmið og ég heyri þvílík fagnaðarlæti, kallinn klárlega að gera góða hluti. Þegar ég sé klukkuna og tímann 04:28 sé ég að ég gæti gæti mögulega verið að fara hálfan járnkarl undir fimm klukkustundum! Einungis einn hringur eftir nú var að gefa sig allan í þetta greip mér poweraid og kom ofaní mig svona einum fjórða úr glasinu restin fór í andlitið á mér eða framan á bringuna (þarf eitthvað að æfa að drekka úr glasi á hlaupum) ekki alveg að gera sig. Verkir fóru að ágerast mér fannst ég vera að auka hraðann en garmin var ekkert sammála því. Það var mjög gaman að hlaupa þessa braut fram og til baka og mæta keppendum og skiptast á kveðjum. Svo var það bara að verða að veruleika þetta var s.s allt að gerast ég kom í mark á frábærum tíma 04:50:11 og á hlaupa tímanum 01:40:43 sem er svo fjarstæðukenndur tími í mínum huga þar sem ég byrjaði að hlaupa í september 2009 alveg frá grunni eftir erfiða krossbanda aðgerð.
Þvílík sæla þvílíkt stolt. Fjölskyldan var þarna til að fagna með manni sem og vinir, mögnuð stund.
Tja nú er maður hálfnaður með heilan!!!

Koma í mark 1/2 járnkarl





Gaman að lesa þetta og magnaður árangur. Til hamingju. Hefði samt viljað sjá þig keppa í stuttum topp a la Faris Al-Sultan
ótrúlega stollt af þér litli brósi minn:)
Ég sá nú bara sundlegginn og “skransið”
út af göngustígnum í byrjun hjólaleggsins. Leist mjög vel út á þeim tímapúnkti. Til hamingju með þetta.
P.s.
Er nokkuð of seint að skella sér til Danmerkur
Gaman að lesa þessa sögu, frábær árangur og til hamingju með hann. Mér sýnist ekkert koma í veg fyrir það að kallinn skelli sér í heilan á næsta ári.
Frábær samantekt hjá þér og ekkert nema hvetjandi að lesa þetta. Það verður gaman að sjá hvaða tíma þú nærð í heilum járnkarli á næsta ári
Flottur árangur hjá þér Helgi, þú getur verið stolltur af sjálfum þér. Til hamingju enn og aftur.
Frábær frásögn Helgi. Innilega til hamingju með þetta glæsilega afrek enn og aftur!
Það væri líka gaman að fá að lesa upplifun Beggó. Komaso MF.
Flott saga , og frábær árangur , þó að ég hafi unnið þig í Lóninu
heheeh
Glæsilegt hjá þér gamli vinur. Ég skal hlaupa með ef þú ert að þvælast fyrir norðan.