Bjartur á tvo járnkarla

July 12th, 2010 eftir arnar Skildu eftir svar »


Ironman 70.3 Hafnarfjordur

1,9 km sund, 90 km hjól, 21,1 km hlaup

11. juli 2010, Asvellir/Hafnarfjordur (IS)

Helgi "große Waden" Hinriksson að dúlla sér á hjólið

Á síðast liðinn sunnudag var haldin Ironman 70.3 í Hafnarfirði og þar voru okkar menn Helgi og Beggó hreint stórkostlegir. Helgi náði frábærum tíma og virtist hlaupa yfir endalínuna eins hann væri tilbúinn í slaginn aftur. Beggó stóð sig líka vel og eru þeir félagar nú reynslunni ríkari fyrir Ironman ? 2011. Blaðamaður Bjarts upplifði góða stemmningu og vel skipulagða keppni sem rúmlega þrjátíu keppendur tóku þátt í.

6. Helgi Hinriksson (Bjartur) 04:50:11 (00:34:35-02:34:51-01:40:43)
12. Bergþór Jóhannsson (Bjartur) 05:26:03 (00:31:28-02:43:18-02:11:16)

Hér er hægt að skoða heildarúrslit úr keppninni.

Auglýsing

7 athugasemdir

  1. Bruno Schnitzel says:

    Helgi er án efa “besti nýliðinn” í þessu. Svo ætti auðvitað að verðlauna hann í hverri keppni fyrir kynþokkann og þrautsegjuna.

  2. Robbi says:

    Beggó og Helgi voru stórkostlegir í þessari keppni og voru báðir að klára keppni á betri tíma en þeir vonuðust eftir. Þeir eiga eftir að massa heilan járnkall á næsta ári :) .

  3. Corinna says:

    Til hamingju strákar. Flottustu bjartsmenn í bili ;)
    Og þið eruð með flottasta starfsfólk líka ;) Takk fyrir mig.

  4. Birgir Gilbertsson says:

    Til hamingju strákar, nú er bara næsta mál að massa heilan járnkall :)

  5. Perfo says:

    Beggó þú verður að læra á performance til að ná mynd af þér hérna inn á :O

  6. Steffi says:

    Til hamingju Strákar :) Alltaf gaman að keppa með ykkur!

  7. Steinn says:

    Bjartur á tvo hálfa járnkarla : )
    Frábær árangur hjá þeim og Helgi er pottþétt nýliði ársins.