Cyclocross hjól henta sérstaklega vel við íslenskar aðstæður!. Cyclocross keppnir er ört vaxandi keppnisgrein út um allan heim, hér má sjá skemmtilegt vídeó úr einni slíkri keppni
12 Hjólablogg til að fylgjast með á árinu 2012
January 11th, 2012 | Posted by in Hjólreiðar - (0 Comments)
Hér er listi tekinn saman af Jesper Bondo Medhus sem gerir út síðuna áhugaverða síðu Training4cyclists.com. Flottar síður sem hann hefur tekið saman og vert er að fylgjast með, allar um málefni sem tengjast hjólreiðum eða þjálfun á einhvern hátt.
1. Bicycle Tutor Viðgerðir á reihjólum.
2. Chris Aarons Æfinga heilræði úr ýmsum áttum.
3. Daniel Carruthers Nýleg síða með fullt af myndum og efni um hjólreiðar.
4. Wade Wallace Svalar hjólamyndir og snjallræði um hjólreiðar
5. Joe Friel Hinn goðsagnakenndi Joe Friel með sitt hjólablogg.
6. Ross Tucker and Jonathan Dugas Nútíma greiningar á þolþjálfun ofl.
7. Hunter Allen and Andrew Coggan Bloggið á bak við hina vinsælu bók Training and Racing with a Power Meter.
8. Alex Simmons Greining á hjólreiðaþjálfun.
9. Marco Cardinale Hreysti og hreyfing.
10. Jim Vance Þríþautarþjálfari …
11. Brian Dewberry Fylgist með áframhaldandi þyngartaps verkefni 2012.
12. The Sufferfest Hér er hægt að vista hjólreiðaæfinga ræmur.

Hjólreiðafélagið Bjartur og 3SH bjóða í samhjól!
January 2nd, 2012 | Posted by in Hjólreiðar - (0 Comments)Eins og flestir vita þá eru ofur-Bjartsmennirnir Ólafur Baldursson og Bergþór Jóhannsson búnir að opna eina glæsilegustu þríþrautar, hjóla, hlaupa og sundvöru verslun á Íslandi, verslunin TRI er staðsett að Suðurlandsbraut 32. Þar starfar mjög hæft starfsfólk með mikla reynslu í öllum ofangreindum greinum….og munu þau veita viðskiptavinum alla þá ráðgjöf sem óskað er eftir.
Það hefur gríðarlega mikið borið á Bjartsmönnum upp á síðkastið þó svo það mögulega hafi farið fram hjá þér lesandi góður!. Bjartsmenn mættu á fyrsta samhjól vetrarins sem var að þessu sinni í boði hfr.is og Arnarins, óhætt að segja að það hafi verið góð mæting þrátt fyrir erfiðar aðstæður en mikill snjór og kuldi herjaði á hjólandi. Bjartsmenn munu sjá um næsta samhjól sem fram fer 8. Janúar 2012. Eigum við von á metþátttöku annað árið í röð! Meira um það síðar. Nokkrir Bjartsmenn eru í þessum töluðu orðum að standsetja allra flottustu hjólabúð í heiminum í dag! Og þó víðar væri leitað! verslunin TRI ehf. www.tri.is mun bjóða upp á hágæða hjól frá CUBE sem og allt á hjólarann, hlauparann og sundmanninn en glöggvir lesendur hafa eflaust áttað sig á því að nafnið TRI er stytting á orðinu triathlon sem á íslensku er þríþraut, þríþraut verandi sund, hjól og hlaup. Verslunin er staðsett að Suðurlandsbraut 32 jarðhæð, skorum við á alla að kíkja á þá félaga strax í næstu viku.




